Günther farinn í hart við Haas

Günther Steiner (t.v.) ásamt Romain Grosjean og Gene Haas þegar …
Günther Steiner (t.v.) ásamt Romain Grosjean og Gene Haas þegar allt lék í lyndi mbl.is/afp

Günther Steiner er farinn í mál við fyrrum vinnuveitendur sína hjá Haas liðinu í Formúlu 1. Steiner telur sig eiga inni bónusgreiðslur yfir tímabilið 2021-2023.

Steiner starfaði sem liðstjóri Haas frá árinu 2014 en honum var sagt upp í lok síðasta tímabils. Haas hafnaði í neðsta sæti í keppni bílasmiða með einungis tólf stig.

Steiner naut mikilla vinsælda í raunveruleikaþáttunum Drive to Survive þar sem óhefluð framkoma hans og sérkennileg kímnigáfa vakti lukku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert