„Vil ekki tala um við blaðamenn“

Gernot Rohr landsliðsþjálfari Nígeríu.
Gernot Rohr landsliðsþjálfari Nígeríu. AFP

„Taktíkin er eitthvað sem ég vil ekki tala um við blaðamenn,“ sagði Gernot Rohr  landsliðsþjálfar Nígeríu á fréttamannafundi nígeríska landsiðsins í knattspyrnu sem nú stendur yfir á Volgograd Arena en Nígeríumenn mæta þar Íslendingum í 2. umferð riðlakeppni HM í knattspyrnu á morgun.

„Ég tala um hana við leikmennina. Við verðum með taktík til að vinna leikinn, en ég get ekki sagt hvaða taktík það verður. Við vorum með gott skipulag í síðasta leik en töpuðum leiknum samt sem áður. Það var ekki vegna mistaka í skipulaginu.

Við fengum á okkur tvö heimskuleg mörk, eitt sjálfsmark og eitt víti. Nú mætum við öðruvísi liði, Íslandi, og þurfum að aðlaga skipulagið að því,“ sagði Rohr.

Byrjunarlið Nígeríu gegn Króatíu.
Byrjunarlið Nígeríu gegn Króatíu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert