Ákveðin værukærð yfir okkur

Brynjar Þór Björnsson fyrirliði KR var vitaskuld hæstánægður með sigur í Ljónagryfjunni í kvöld þegar KR og Njarðvík mættust í Dominos-deild karla í körfuknattleik.

Brynjar viðurkenndi að steikin stæði líkast til eitthvað í mönnum því að hans sögn virkaði liðið hægt og alls ekki á þeim stað sem þeir vildu. Brynjar bætti við að það hafi verin ákveðin værukærð yfir leik KR en að sigurinn hafi verið góður og liðið þyrfti að vera í góðu standi fyrir bikarhelgina sem er rétt handan við hornið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert