Christian Jones í Keflavík

Christian Jones.
Christian Jones. Ljósmynd/Heimasíða St. Johns

Karlalið Keflavíkur í körfubolta mun tefla fram tveimur atvinnumönnum það sem eftir lifir tímabils. Christian Jones er genginn í raðir félagsins en fyrir er Dominique Elliot hjá Keflvíkingum.

Jones er 24 ára og 201 cm á hæð. Hann lék í bandaríska háskólaboltanum frá 2012-2017 en síðast var hann hjá Oldenburg í Þýskalandi. Keflvíkingar vonast til að hann verði með gegn Þór Þ. 2. febrúar næstkomandi. Karfan.is greindi frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert