Dwyane Wade að fá risasamning í Kína

Dwyane Wade.
Dwyane Wade. AFP

Bandaríski körfuboltamaðurinn Dwyane Wade hefur fengið samningstilboð frá kínverska félaginu Zhejian Golden Bulls. Samningurinn er til þriggja ára og myndi færa Wade um 25 milljónir dollara.

Fari svo að Wade gangi í raðir félagsins verður hann launahæsti leikmaður kínversku körfuboltadeildarinnar frá upphafi. Andray Blatche, fyrrverandi leikmaður Brooklyn Nets og Washington Wizard, er fyrir hjá Zhejian Godel Bulls og er hann sem stendur sá launahæsti. 

Wade er 36 ára gamall og lék hann síðast með Miami Heat, en hann hefur einnig leikið með Cleveland Cavaliers og Chicago Bulls. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert