Volkswagensamsteypan sem heild seldi 2,8% færri bíla á fyrsta ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra.
Alls seldi samsteypan 2,6 milljónir bíla en samdráttur upp á 4,5% varð hjá kjarnamerkinu sjálfu, VW.
Í Kína varð samdráttur samsteypunnar 6,3% en þar í landi dróst heildarmarkaðurinn saman um 12% svo í raun bætti hún sig þar.