Jeep Wrangler nú með díselvél

Jeep Wranlger Rubicon fæst nú með dísilvél.
Jeep Wranlger Rubicon fæst nú með dísilvél.

Bifreiðaumboðið Ís-Band mun frumsýna á morgun, laugardaginn 27. apríl,  Jeep Wrangler Rubicon með nýrri dísilvél, en í byrjun mars frumsýndi Ís-Band nýjan Jeep Wrangler Rubicon með bensínvél.

Nýja dísilvélin er 2,2 lítra og 200 hestöfl. Hún togar 450 Nm við 2.000 snún./mín.

Jeep Wrangler sló í gegn á frumsýningu bensínbílsins því fyrsta sending seldist upp fljótlega eftir frumsýninguna.

„Líkt og bensínútgáfan er dísil Jeep Wrangler Rubicon mjög vel útbúinn. Rock Trac fjórhjóladrif og 100% Tru-Loc driflæsingar að framan og aftan. Selec-Track millikassi og 4WD auto stilling sem gerir kleift að hægt er að aka Wrangler í fjórhjóladrifinu án þess að til þvingunar komi á milli fram- og afturöxuls. Þennan búnað er einungis að finna í evrópsku útfærslunni og þar af leiðandi ekki í amerísku eða kanadísku útgáfunni. Ný kynslóð Dana Heavy Duty fram- og afturhásinga, með aftengjanlegri jafnvægisstöng að framan og 4:10 drifhlutföllum,“ segir í tilkynningu.

Verð á Jeep Wrangler Rubicon er frá 10.890.000 krónum. Boðið eru upp á veglegan aukahlutapakka á sýningarbílunum sem innihalda m.a. leðurinnréttingu, LED aðal- og þokuljós og LED ljós að að aftan, bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð, blindhornsvörn, Bluetooth til að streyma tónlist og síma, íslenskt leiðsögukerfi og Apple CarPlay & Google Android og kostar hann með öllum aukahlutum 12.450.000 kr.

Jafnframt því að sýna frumsýna nýjan Jeep Wranlger Rubicon dísil, mun Ís-Band sýna breytta Jeep Grand Cherokee jeppa með 33” og 35” breytingu. 35” breytingin er unnin í samvinnu við Arctic Trucks.

Sýningin er verður opin á milli kl. 12 og 16 og er í sýningarsal Ís-Band að Þverholti 6 í Mosfellsbæ. Rjúkandi heitt Lavazza kaffi og KitKat frá Danól verður í boði sem og ískalt Egils appelsín frá Ölgerðinni.

mbl.is