Frumsýna nýjan RAM 3500

Voldugur að sjá, RAM 3500.
Voldugur að sjá, RAM 3500.

Næstkomandi laugardag, 11. maí, frumsýnir bifreiðaumboðið Íslensk-Bandaríska í Mosfellsbæ nýjan RAM 3500. 

„Nýtt útlit, nýjar útfærslur og fjölmargar tækninýjungar er meðal þess sem er að finna í nýjum RAM.  Ís-Band mun bjóða bílinn í útfærslunum, Limited, Laramie (Sport & Black Edition) og Big Horn. Einnig verður RAM Mega Cab frumsýndur, en hann verður fáanlegur í Laramie og Limited útfærslum,“ segir í tilkynningu frá Ís-Band.

Í bílnum er 6,7 lítra Cummins vél með sex þrepa sjálfskiptingu. Hún er 370 hestölf en öflugri með AISIN sjálfskiptingu, eða 400 hestöfl. „RAM er ekki aðeins með mesta togið, 1365 Nm (AISIN), heldur mestu dráttargetuna og mesta innrarýmið í sínum flokki,“ segir Ís-Band.

Fjölmargar tækninýjungar er hægt að fá í nýjum RAM sem aukabúnað, s.s. 12 tommu snerti- og upplýsingaskjá, 360° myndavél og skynjara að framan og að aftan, RAM box með 400W raftengi og fjarstýrða opnun á afturhlera.

Frumsýningin á nýjum RAM verður í sýningarsal Ís-Band að Þverholti 6 í Mosfellsbæ og stendur yfir frá klukkan 12-16. 

mbl.is