Starfsfólk Toyota er búið að gera klárt fyrir árlegan þjónustudag sem verður á laugardag, 18. maí, frá kl 11 – 15.
Toyotaeigendur eru boðnir velkomnir til söluaðila Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi.
„Viðurkenndir þjónustuaðilar Toyota láta ekki sitt eftir liggja og geta Toyotaeigendur því einnig komið til Arctic Trucks á Kletthálsi, á Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur á Bæjarflöt, Bílatanga á Ísafirði, Bílageirann í Reykjanesbæ og, Bifreiðaverkstæði KS á Sauðárkróki,“ segir í tilkynningu.
Bílarnir verða þvegnir, boðið upp á grill og gos og gestir leystir út með sumarglaðningi.