Frumsýnir Cayenne Coupe og Porsche 911

Porsche Cayenne.
Porsche Cayenne.

Í tilefni þess að Porsche hefur eignast nýtt heimili og er flutt af Vagnhöfðanum í sýningarsal Bílabúðar Benna að Krókhálsi 9 efnir Bílabúðin til sýningar á morgun, laugardaginn 22. júní.

„Sýningargripirnir eru ekki af verri endanum og margt spennandi verður á boðstólum í nýja Porsche-salnum,“ segir í tilkynningu. Thomas Már Gregers, sölustjóri Porsche á Íslandi, segir að við þessi tímamót sé ánægjulegt að geta boðið upp á fjölbreytta sportjeppasýningu og tvöfalda frumsýningu.

„Fyrst má nefna nokkur glæsileg eintök af öflugustu sportjeppum götunnar; með ofurjeppann Cayenne fremstan í flokki. Þá verður glæný útgáfa af hinum þrælmagnaða Macan á svæðinu og svo smellum við okkur í sportgírinn og frumsýnum nýjustu kynslóðina af goðsögninni 911,“ segir Thomas.

Fagnaðurinn nær svo hámarki með frumsýningu á Porsche Cayenne Coupe.

Sýning Bílabúðar Benna stendur yfir frá klukkan 12 til 18.

Porsche 911
Porsche 911
Porsche 718
Porsche 718
Porsche 911
Porsche 911
mbl.is