Dacia Duster vinsælasti bílaleigubíllinn

Dacia Duster.
Dacia Duster.

Á nýliðnu ári voru 5.119 bílaleigubílar nýskráðir hér á landi, 27,3% færri en 2018 þegar þeir voru 7.039.

Hins vegar nýskráðu leigurnar 106% fleiri bíla í síðasta mánuði ársins eða alls 268 í stað 130 á árinu 2018, samkvæmt upplýsingum frá bílaumboðinu BL.

Þriðja árið í röð var Dacia Duster langvinsælasti bílaleigubíllinn auk þess sem Nissan Qashqai var á lista tíu vinsælustu ökutækja bílaleiganna. Alls voru 1.593 bílar af merkjum sem BL er með umboð fyrir skráðir bílaleigunum á liðnu ári.

Nýskráningar bílaleigubíla 2019.
Nýskráningar bílaleigubíla 2019.
mbl.is