Sixt býður notaða bílaleigubíla

Opel Crosslander X.
Opel Crosslander X.

Svokallaðir Súperdagar standa nú yfir á bílaleigubílum frá bílaleigunni Sixt. Um er að ræða gæðabíla, af árgerðunum 2015 til 2019, frá fjölda framleiðenda.

Fram kemur í fréttatilkynningu að þessir bílar hafi allir fengið góða umönnun hjá Sixt og fullyrt er að hægt sé að gera frábær kaup.. Kaupendum mun auk þess standa til boða fjármögnunarkostir.

Salan stendur yfir á bílaplani notaðra bíla hjá Bílabúð Benna Krókhálsi 9 og hjá Bílabúð Benna, Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ. Auk þess bjóða aðrir söluaðilar Sixt upp á Súperdaga kjör.

Hægt er að skoða alla bílana og staðsetningu sölustaða á sixtbilasala.is

mbl.is