Sumum fellur vel dekkjalykt en aðrir, sennilega flestir, gætu vel hugsað sér að vera lausir við hinn sterka keim sem af dekkjum er.
Dekkjaframleiðandinn Sumitomo Rubber kveðst kominn með lausn á lyktarvandamálinu. Segir að gúmmídauninn megi rekja til próteina og fituefna í hrágúmmíi, hinu náttúrulega efni dekkjanna.
Hefur Sumitomo þróað ný dekk sem fyrirtækið kallar „lyktarsnautt náttúrugúmmí“. Talið er að með staflana af því á lagerum sínum verði auðveldara fyrir dekkjasala að fá fólk til starfa. agas@mbl.is