Volvo tengiltvinnjeppar seldust upp í forsölu

Volvo XC40 Recharge tengiltvinnjeppinn.
Volvo XC40 Recharge tengiltvinnjeppinn.

Um 50 bíla sending af nýjum Volvo XC40 Recharge tengiltvinnjeppum var öll seld í forsölu áður en bílarnir komu til landsins. Afhendingar eru hafnar og verða kláraðar á næstu dögum en að því loknu verður búið að afhenda ríflega 80 Volvo XC40 Recharge tengiltvinnbíla frá því þeir voru frumsýndir fyrr á árinu.

Næstu sendingar sem koma í júlí og ágúst eru einnig uppseldar en lausir bílar eru í september sendingu.

„Nýr vefsýningarsalur Brimborgar og áhersla á forsölu hefur gert Brimborg kleift að lækka kostnað umtalsvert sem hefur skilað sér í ótrúlega hagstæðu verði á Volvo XC40 Recharge tengiltvinnjeppanum. Það hefur gert mun fleirum kleift að eignast gæðabíl frá Volvo og um leið taka þátt í orkuskiptunum með nýjustu tækni bíla,“ segir í tilkynningu.

Þar segir ennfremur að vinsældir Volvo XC40 Recharge tengiltvinnjeppans megi skrifa á gott drægi á rafmagninu einu. Er það 46 km sem nægi fyrir allan daglegan akstur. Einnig vegur þungt í ákvörðun kaupenda að engar áhyggjur þarf að hafa af rafmagnsleysi á lengri ferðum eða hvort hleðslustöðvar séu á leiðinni.

Volvo XC40 Recharge er hluti af þeirri stefnu Volvo Cars að allar gerðir Volvo bíla verði fáanlegar í rafútgáfu. Nú býður Volvo Cars sjö gerðir tengiltvinnbíla og áætlar að árið 2025 verði að minnsta kosti helmingur allra seldra Volvo bíla hreinir rafbílar og hinn helmingurinn rafknúinn að einhverju leiti.

„Volvo er vinsælasti lúxusbíllinn á Íslandi og um 80% af sölu Volvo hér á landi eru vistvænir tengiltvinnbílar og jeppar. Volvo XC40 Recharge tengiltvinnjeppinn mun auka þetta hlutfall enn frekar þar sem hann er einstaklega vel búinn, með mikla drægni á rafmagni og á einstaklega hagstæðu verði. Það styrkir stöðu Volvo sem fremsta og umhverfisvænasta lúxusmerkið á Íslandi,“ segir í tilkynningu frá Brimborg.

mbl.is