Kynnir handhafa Gullna stýrisins

Hinn nýi Hyundai i20.
Hinn nýi Hyundai i20.

Hyundai á Íslandi kynnir nk. laugardag milli kl. 12 og 16 nýjan og endurhannaðan i20 sem tvívegis hefur unnið Gullna stýrið hjá Auto Bild.

Nú síðast hlotnaðist i20 verðlaunin í nóvember síðastliðnum í flokki bíla sem kosta undir 25 þúsund evrum á Evrópumarkaði.

Undir þeim mörkum er nýr i20 sannarlega á Íslandi því Hyundai í Garðabænum býður beinskiptan i20 frá kr. 2.690.000. og sjálfskiptan frá kr. 3.090.000.

Meiri öryggis- og þægindabúnaður

„Tæknilega er nýr Hyundai i20 búinn meiri og betri þæginda- og öryggisbúnaði en áður og ennfremur sé miðað við sambærilega bíla af öðrum tegundum í sama stærðar- og verðflokki.

Þar á meðal eru aukin öryggiskerfi sem styðja á margvíslegan hátt við öruggari akstur í umferðinni en veita einnig þægilega og örugga aðstoð þegar leggja þarf bílnum í stæði.

Einnig má nefna nýjan rúmlega 10“ upplýsingasnertiskjá í farþegarýmingu, þráðlausa símahleðslu, lykillaust aðgengi, aukið útsýni úr farþegarýminu, val um tvílitar útgáfur bílsins og fleira sem dómnefnd Auto Bild nefndi meðal annars sem dæmi um þá miklu alúð við smáatriðin sem Hyundai hefði lagt í hönnun hins nýja i20,“ segir í tilkynningu.

Ítarlegar upplýsingar á vefnum
Á vef Hyundai á Íslandi eru allar nánari upplýsingar að finna um nýjan Hyundai i20, ríkulegan staðalbúnað bílsins ásamt úrvali aukabúnaðar sem hægt er að velja með nýja bílnum.

Hinn nýi Hyundai i20.
Hinn nýi Hyundai i20.
Hinn nýi Hyundai i20.
Hinn nýi Hyundai i20.
mbl.is