Toyota hefur hrundið úr vör nýju módeli , Yaris Cross, handa þeim sem eru á eftir bíl í milli flokki stærðarlega séð. Hann mun koma á götuna í Evrópu í haust.
Samkvæmt upplýsingum frá Toyota mun bíllinn verða með fjórhjóladrifi í Adventure útgáfunni. Segir að hún sé hönnuð með aktívan líffstíl í huga; fyrir fólk sem skellir sér í sveitina um helgar og skoðar sig um á nýjum slóðum.
Útlitið þykir töffaralegt en Yaris Cross er byggður upp af sama TNGA-B undirvagni og nýi fimm dyra Yarisinn. Setan í Cross er hærri og hæð undir lægsta punkt meiri.
Yaris Cross er tengiltvinnbíll með þriggja strokka vél og rafmótor en saman skila þau 116 hestöflum. Aflrásin er sú sama og í fimm dyra Yarisnum. Áætlar Toyota að losun úrgangslofts verði um 100 grömm a kílómetra á bíl með afli á framhjólum og um 110 g/km á fjórhjóladrifsútgáfunni.
Vart þarf að taka fram að hinar nýju Yarisútgáfur eru hlaðnar af hvers kyns rafeinabúnaði í þágu aukins öryggis ökumanns og farþega.