Lúxurafbíll á götunum

Rafbíllinn Mercedes-Benz EQS.- í Reykjavík í dag.
Rafbíllinn Mercedes-Benz EQS.- í Reykjavík í dag.

Nýr Mercedes-Benz EQS lúxusrafbíll hefur sést síðustu daga á götum höfuðborgarsvæðisins. EQS var flogið til Íslands á laugardaginn í tengslum við Mid Season Invitational tölvuleikja-keppnina sem er haldin í Laugardalshöll þessa dagana.

Mercedes-Benz er einn af styrktaraðilum keppninnar sem mun vinsæl um heim allan. EQS verður í tökum fyrir keppnina alla vikuna áður en honum verður svo flogið aftur út um næstu helgi.

„EQS er hátæknivædd lúxuskerra og flaggskip Mercedes-Benz í rafbílum. Ytra byrði EQS er hannað sem ein lína sem veldur því að bíllinn er einstaklega straumlínulagaður en hann hefur loftmótstöðugildið 0,20 Cd sem er það minnsta í heimi meðal fjöldaframleiddra bíla,“ segir í tilkynningu.

Innanrýmið verður hlaðið lúxus og munaði auk mikillar tækni enda er bíllinn einn tæknivæddasti bíll sem framleiddur hefur verið. Nýja Hyperscreen mælaborðið verður í boði í EQS en það er tækni án hliðstæðu í fólksbíl en þar er um að ræða 141 cm háskerpuskjá sem teygir anga sýna yfir allt mælaborðið. EQS er með nýjustu útgáfuna af MBUX margmiðlunarkerfinu sem sér til þess að engum leiðist um borð í bílnum og veitir aðgang að allri afþreyingu og upplýsingum sem völ er á. Burmeister hljóðkerfi með 15 hátölurum veitir einstakan hljóm í innanrými bílsins.

Með stærri rafhlöðunni sem í boði er skilar EQS yfir 700 km drægi samkvæmt WLTP og í ákveðinni útfærslu af bílnum má ná allt að 770 km samkævmt WLTP staðli. Minni rafhlaðan skilar 640 km. Öflugri gerðin er 523 hestafla með hámarks tog alls 855 Nm. Minni rafhlaðan skilar 333 hestöflum og 568 Nm í hámarkstogi. Framdrifsútfærsla á EQS með stærri rafhlöðunni er 6,3 sekúndur 0-100 km hraða og í aldrifs útfærslunni aðeins 4,3 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið.

„Það er afar spennandi og raunar alveg einstakt fyrir okkur hér á Íslandi þar sem bíllinn er hvergi kominn í sölu í heiminum. Hann hefur aðeins verið frumsýndur en fyrstu bílar koma á göturnar í lok sumars/haust. Við iegum von á bílnum hingað til lands í sölu í haust,“ segir Jónas Kári Eiríksson hjá Bílumboðinu Öskju sem er umboðsaðili Mercedes-Benz á Íslandi.

mbl.is