BL frumsýnir nýjan sjö manna fjórhjóladrifinn lúxusrafjeppa

Hinn aldrifni (AWD) og 100% rafdrifni lúxusjeppi, Hongqi E-HS9, verður …
Hinn aldrifni (AWD) og 100% rafdrifni lúxusjeppi, Hongqi E-HS9, verður kynntur um helgina. mbl.is/aðsend

Hongqi er nýtt bílamerki hjá BL og verður af því tilefni haldin sérstök frumsýning nk. laugardag, 15. október. Á sýningunni verður flaggskip framleiðandans, hinn aldrifni (AWD) og 100% rafdrifni lúxusjeppi, Hongqi E-HS9, kynntur og verður reynsluaksturbíll til taks á staðnum.

Í tilkynningu frá BL kemur fram að Hongqi E-HS9 er 100% rafdrifinn, fjórhjóladrifinn lúxusjeppi frá Hongqi sem framleitt hefur bifreiðar allt frá árinu 1958. Staðalbúnaður í grunngerðinni er vítt opnanlegt glerþak, rafstýrður afturhleri og þykkari bílrúður en venja er til að auka hljóðvist í farþegarýminu. E-HS9 Exclusive gerðin er búinn meiri tækni en margir eiga að venjast, svo sem loftpúðafjörðun, Nappaleðurákvæði og nuddi í sætum ökumanns og farþega. Við framsæti Exclusive eru auk þess fjórir skjáir sem samanstanda af stafrænu mælaborði og þremur upplýsinga- og afþreyingarskjám.

Á öryggissviði eru Hongqi E-HS9 búinn mikilli og þróaðri tækni, m.a. skynvæddum hraðastilli með nálægðarstillingum, AVAS hljóðviðvörunarkerfi, rafrænu stöðugleikakerfi, ákeyrsluviðvörun, umferðarskynjara að aftan, 360°myndavélakerfi, bílastæðaaðstð, akreinaskynjara og -stýringu auk sjálfvirkrar neyðarhemlunar svo fátt eitt sé nefnt.

Séð innan í aftursæti Hongqi E-HS9.
Séð innan í aftursæti Hongqi E-HS9. mbl.is/aðsend

Fram kemur að BL býður Hongqi E-HS9 í sex og sjö sæta útgáfum sem boðnar eru í þremur búnaðarútfærslum; Comfort, Premium og Exclusive. Útgáfurnar Comfort og Premium eru með sæti fyrir sjö manns (2x3x2) og Exclusive fyrir sex (2x2x2). Comfort-útfærslan er búin 84 kWh rafhlöðu sem skilar 435 hestöflum og 396 km drægni á meðan Premium og Exclusive hafa 99 kWh raflöðu og 551 hestafla rafmótor og er drægni beggja útgáfa 465 km. Bíllinn er með togkraft frá 600 til 750 Nm sem skila hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst á innan við 5 sekúndum.

Þá kemur fram í tilkynningunni að um 1.300 eintök hafi þegar selst í Noregi frá því að salan hófst fyrr á þessu ári.

mbl.is