Gæði fram yfir magn fyrir börnin

Ralph Lauren er einn þekktasti tískuhönnuður í heimi. Hann bjó til tískuveldið sitt úr engu og býður upp á vandaðan fatnað fyrir alla fjölskylduna, einnig börnin, fyrir jólin. 

Þegar kemur að því að velja vandaðan fatnað á börnin verður Ralph Lauren oftar en ekki fyrir valinu. Bakgrunnur Ralph Lauren er þannig að öllu fólki finnst það eiga skilið að klæðast fatnaði frá honum.

Hann bjó til tískuveldi sitt úr engu og eru þeir sem aðhyllast Ralph Lauren vanalega fólk sem velur gæði fram yfir magn.

Barnafötin frá tískuhúsinu eru yndisleg. Efnin eru mjúk og fötin vaxa með barninu.

Hluti af uppeldi barna er einmitt að kynna þau fyrir gæðum. Persónulegur stíll býr innra með öllum. „Það hvernig við komum fram við okkur og aðra lýsir stíl okkar, það hefur ekkert með fatnaðinn okkar að gera,“ sagði Ralph Lauren eitt sinn. Fatnaður fyrir börnin frá Ralph Lauren fæst í Englabörnum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert