Taktu lekkerheitin alla leið um jólin

Fallegur reiðhattur með jakka og hlébarðapilsi kemur vel út hjá …
Fallegur reiðhattur með jakka og hlébarðapilsi kemur vel út hjá Bon Point. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Franska tískuhúsið Bon Point er leiðandi þegar kemur að tísku fyrir börn. Þau vörumerki sem eru leiðandi hverju sinni koma fram með ákveðna tísku sem svo hraðtískufyrirtækin taka upp á sína arma stuttu seinna.

Nýr stíll frá Bon Point um þessar mundir er fatnaður í reiðfatastíl. Hönnun og vinnsla á sniðunum er til fyrirmyndar og litlir hlutir setja punktinn yfir i-ið hjá tískuhúsinu. 

Rúllukragabolur með fallegri dragt er í tísku fyrir börnin í …
Rúllukragabolur með fallegri dragt er í tísku fyrir börnin í dag. Bon Point-vörumerkið er leiðandi á sínu sviði. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Reiðstíllinn kemur reglulega upp og verður vinsæll. Hver man ekki eftir reiðbuxunum sem önnur hver kona skartaði í borginni í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar? Ralph Lauren hefur einnig haldið þessum stíl gangandi reglulega. Fagurlega hannaðar rúllukragapeysur notaðar með þröngum reiðbuxum gerir fallegan stíl svo ekki sé minnst á reiðjakkana góðu sem eru vanalega mjóir í mittið með bót á olnbogunum.

Sjón er sögu ríkari.

Hattur í reiðhjálmastíl með ljósri blúnduskyrtu er falleg samsetning. Bon …
Hattur í reiðhjálmastíl með ljósri blúnduskyrtu er falleg samsetning. Bon Point. Ljósmynd/skjáskot Instagram
View this post on Instagram

Cotton satins, lace tulles, gold silk taffetas, red and black velvet… Metamorphosed by the House of Bonpoint ateliers, sublimated by the most beautiful fabrics, the couture collection adopts the rhythm of a resolutely rock elegance, both joyful and chic: one that we find in a hazelnut faux fur cape, a velvet tunic with shirttails and lace collar and for the boys, a tuxedo with black satin lapels. A magical wardrobe that lights up with gold and silver. Winter collection designed by our Artistic Director @christine_innamorato . . . Satins de coton, tulles dentelle, taffetas de soie or, velours rouge ou noir… Métamorphosée par les ateliers de la Maison Bonpoint, sublimée par les plus belles étoffes, la collection couture adopte le rythme d’une élégance résolument rock, joyeuse et chic à la fois : celle que l’on retrouve dans une cape en fausse fourrure noisette, une tunique en panne de velours et col de dentelle et même, pour les garçons, un smoking à revers de satin noir. . . #winter #couture #winter18 #fw18 #bonpointfw18 #kids #fashionkids #winterwardrobe #couture #festiveseason

A post shared by @ bonpoint on Nov 13, 2018 at 4:29pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert