„Alltaf dreymt um risaveislu“

Mæðgurnar eru spenntar fyrir fermingunni.
Mæðgurnar eru spenntar fyrir fermingunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alba Mist og Marín Manda Magnúsdóttir eru í óðaönn að undirbúa fermingu Ölbu. Alba heldur veislu á Íslandi og í Danmörku. Hún getur varla beðið eftir fermingunni og mun bjóða upp á ljósmyndabás, hamborgara og skemmtun.

Alba lýsir sjálfri sér sem mjög opinni manneskju. „Mér finnst gaman að kynnast nýju fólki.

Áður fyrr var ég mjög feimin en það hefur breyst. Vinir mínir segja að ég sé með mikinn húmor en ætli ég sé ekki líka með kaldhæðinn húmor. Ég myndi einnig segja að ég væri ákveðin eða orðin ákveðnari og sjálfsöruggari með tímanum. Samt er ég líka viðkvæm og má ekkert aumt sjá. Undanfarið ár hefur verið mjög spennandi með nýju fólki í mínu lífi og fleiri vinum.“

Alba er skapandi og hefur brennandi áhuga á tísku, dansi og ljósmyndun.

Tískan heillar

„Ég vil ekki plana framtíðina of mikið, bara sjá hvert lífið leiðir mig. Ég gæti alveg hugsað mér að fara til Danmerkur í menntaskóla en ég er hálfdönsk og tvítyngd svo það gæti verið gaman. Í dag finnst mér hönnunarbransinn heillandi, hvort sem það er innanhússhönnun eða fatahönnun. Hver veit hvað gerist; kannski verð ég bara flugmaður og ferðast um allan heiminn.“

Hvernig er að fara að fermast?

Mér finnst það mjög spennandi og ég hef hlakkað til lengi. Ég hef verið að plana ferminguna í huganum í langan tíma, finna þema og mér finnst ótrúlegt að allt í einu sé komið að þessu. Í Danmörku er sagt að maður sé að labba inn í „de voksnes rækker“ sem þýðir að þá sé maður að byrja að taka skref inn í fullorðinslífið. Þar eru fermingarnar allt öðruvísi. Mig hefur alltaf dreymt um að halda risaveislu einhvern tímann og nú er að koma að því.“

Ætlar að vera í hælaskóm

Muntu fermast í kirkju eða borgaralega?

„Ég fermist í Langholtskirkju með Hólmfríði bestu vinkonu minni og öðrum góðum vinum úr skólanum.“

Ertu búin að finna fatnað að vera í?

„Já, kjóllinn er kominn á hreint og hann kemur mjög vel út. Ég ætlaði fyrst að vera í samfestingi og strigaskóm en er svo komin í kjól og hælaskó. Mamma er að reyna að kenna mér að ganga á hælum en ég geng nánast eingöngu í strigaskóm þannig að það verður að koma í ljós í hvaða skóm ég enda á fermingardaginn.“

Hvaða máli skiptir trúin í þínu lífi?

„Ég bið ekki borðbæn á hverju kvöldi en það er gott að hugsa til þess að það sé eitthvað þarna úti sem passar upp á okkur. Ég trúi á að Guð sé andi sem er alltaf til staðar en ekki endilega karlkyns eða kvenkyns. Ég missti afa minn fyrir nokkrum árum og stundum finnst mér eins og hann sé hjá mér. Þannig trúi ég.“

mbl.is/Kristinn Magnússon

Erfitt að bíða eftir veislunni

Hvernig verður veislan?

„Hún verður vonandi skemmtileg. Ég hlakka til að hitta allt fólkið sem kemur til að gleðjast með mér. Við höfum lengi verið að skipuleggja allt frá því hvernig skraut á að vera, matur og myndir. Ég er bara svo spennt að ég get eiginlega ekki beðið lengur.“

Til hvers hlakkarðu mest?

„Ég hlakka eiginlega til alls; að fermast með vinum mínum, halda æðislega veislu og auðvitað spila gjafirnar inn, en það er alls ekki mikilvægast. Ég mun líka halda aðra fermingarveislu úti í Kaupmannahöfn hjá pabba mínum fyrir fjölskyldu og vini mína þar, þannig að þetta verða tvær ólíkar veislur.“

Er eitthvað sem þú kvíðir fyrir að gera?

„Já, ég kvíði smá fyrir því að fara með orðin mín. Ég kvíði líka pínulítið fyrir því að misstíga mig og detta á leiðinni upp að altarinu. Það væri týpísk ég. Eins gott að ég verði búin að æfa mig á hælunum en ég veit að allt gengur upp á endanum.“

Alba Mis og Marín Manda.
Alba Mis og Marín Manda. mbl.is/Kristinn Magnússon

Að njóta í veislunni

Ertu með hlutverk í veislunni?

„Hlutverkið mitt er bara að njóta veislunnar og bjóða fólk velkomið.“

Hvað hefurðu lært af fermingarfræðslunni?

„Ég hef lært fullt. Meira um trúna mína og hvernig ég get nýtt mér hana í daglegu lífi. Prestarnir eru æðislegar konur, þær taka alltaf vel á móti okkur og við lærum á skemmtilegan hátt. Fáum okkur alltaf gott snarl svo þetta er miklu skemmtilegra en ég bjóst við.“

Hvað langar þig að fá í fermingargjöf?

„Nýjan iPhone-síma, Macbook-tölvu, pening, eitthvað fallegt í herbergið eða utanlandsferð.“

Stolt fermingarmóðir

Marín Manda er ákaflega stolt móðir. „Ég á tvö börn og nú hef ég einnig eignast stjúpson sem ég elska eins og minn eigin. Ég er án efa orðin meyrari en áður því lífið er alls ekki sjálfgefið. Við erum jú sífellt að læra, sem er svo dásamlegt, en ég hef einmitt lært að það er í lagi að hlúa að sjálfri mér þrátt fyrir að vera 100% mamma. Ég hef gjarnan sagt að ég sé með skipulagt „kaos“ í kringum mig í daglega lífinu en með árunum hafi ég uppgötvað að best er að klára verkefnin í stað þess að ýta þeim til hliðar. Ég hef ávallt verið afskaplega sjálfstæð, ákveðin, skapandi og opin að eðlisfari. Ævintýragjörn og þarf að hafa mikið fyrir stafni.“

Ertu að ferma í fyrsta skiptið?

„Já, ég er að ferma frumburðinn svo ég hef enga fyrri reynslu.“

mbl.is/Kristinn Magnússon

Matur frá Hamborgarabúllunni

Hvernig hefur undirbúningurinn verið?

„Hann hefur gengið nokkuð vel en plönin hafa breyst örlítið á leiðinni. Salurinn var fundinn snemma í ferlinu svo það var mikill léttir. Við vorum búin að ákveða notast við veisluþjónustu og bjóða upp á ýmsa rétti en ákváðum síðan að apa eftir vinafólki okkar sem pantaði Hamborgarabúlluna í veisluna. Mér finnst það ótrúlega skemmtileg lausn. Einnig verðum við með fallegt kökuborð og gos fáum við hjá Ölgerðinni. Ég bað svo vinkonu mína Emilíu Kristínu (kallar sig Mckrizz á Instagram) að mynda fermingarskvísuna því hún tekur æðislegar myndir og það er svo gott að vinna með henni.“

Hvernig er að vinna með barninu í þessum undirbúningi?

„Það hefur alveg verið áskorun. Sem betur fer erum við með svipaðar fagurfræðilegar hugmyndir. Við lágum báðar yfir Pinterest og skoðuðum skreytingar, hárgreiðslur, kjóla og mat og höfðum nánast sömu hugmyndirnar þegar við bárum saman bækur okkar. Alba Mist er aðeins mínimalískari og ég hef því þurft að ýta svolítið á hana að prófa nýjan skófatnað og slíkt.“

Kynnist maður barninu betur?

„Ég myndi ekki endilega segja það því við Alba Mist höfum verið duglegar að græja alls konar hluti saman; taka myndir, spá í innanhússmuni og tísku. Að sjálfsögðu finn ég fyrir því að dóttirin er ekki barn lengur heldur er að þroskast hratt. Fermingin er því ákveðin tímamót í því ferli.“

mbl.is/Kristinn Magnússon

Erfitt að finna föt á fermingarbarnið

Hvað kemur á óvart?

„Ekkert sérlega margt. Kannski aðallega hversu snemma maður þarf að byrja undirbúninginn. Fólk hefur yfirhöfuð verið duglegt að koma með uppástungur og bjóðast til þess að aðstoða.“

Hvað er erfitt?

„Erfiðast í þessum undirbúningi hefur verið að finna föt á fermingarbarnið. Hún var búin að ákveða fyrir ári að vera í háum buxum og skyrtu eða samfestingi en margt breytist á einu ári í lífi unglings. Alba Mist er mjög ákveðin þegar kemur að því að klæða sig og hefur verið að mótast í unga dömu á skömmum tíma. Hún er með sinn eigin stíl og við höfum aðeins þurft að „víla og díla“ til að verða sammála um heildarútlitið. Eftir að hafa þrætt allar búðir bæjarins var engin flík sem virkilega heillaði. Ég endaði á því að panta beinhvítan kjól á Asos fyrir hana sem ég fékk heim tveimur dögum seinna. Hann smellpassaði og við erum rosalega ánægðar með hann.“

Hvað er létt?

„Ekkert,“ segir Marín Manda og brosir, „því að undirbúa fermingu fyrir stelpu er gríðarlega mikil vinna. Hins vegar hefur mér þótt það svo skemmtilegt svo um leið og salurinn var bókaður fór allt annað að rúlla.“

Verða með ljósmyndabás

Í hverju verður þú?

„Ég get víst ekki ákveðið það fyrr en alveg undir lokin því ég er ófrísk og það er munur á mér í hverri viku. Ég mun að sjálfsögðu reyna að fara í mitt fínasta púss með kúluna út í loftið. Líkaminn er að taka svo miklum breytingum. Þrátt fyrir að mér finnist fúlt að komast ekki í hvað sem er núna er ég svo þakklát þessum líkama sem passar svo vel upp á litla lífið inni í mér. Aðalfókusinn verður á stóru skvísunni minni þennan dag svo ég er alveg sátt við það að vera í bakgrunninum vaggandi eins og mörgæs.“

Hvernig verður veislan?

„Við erum með hálfgert blómaþema í hvítum, fölbleikum og gylltum tónum. Veislan verður haldin í sal í Borgartúninu með fallegu útsýni yfir Faxaflóann. Boðslistinn var fljótur að fara yfir 150 manns svo við þurftum að skera niður til að koma fólki fyrir. Okkur þótti mikilvægt að fólk sem fagnar með fermingarbarninu á þessum degi þekki að minnnsta kosti til fermingarbarnsins með nafni. Boðslistinn er því rúmlega 80 manns og munum við halda veisluna um kvöldmatarleytið. Við bjóðum upp á Hamborgarabúlluna sem mætir á svæðið og sjálfsögðu sætt kökuborð í eftirrétt. Makkarónur, skreyttar möffins, döðlugott og Rice Krispies-kransakökur. Una vinkona mín (heitir Unabakstur á Instagram) gerir dásamlega fallegar og gómsætar kökur og mun hún gera fermingartertuna sem verður skreytt með blómum. Einnig ætlum við að bjóða upp á Ava-aldinvatnsdrykkinn frá Ölgerðinni sem er ferskur og góður. Alba Mist er búin að banna mér að halda ræðu en ég er ekki viss um að ég geti staðið við það. Mér datt í hug að hún myndi fara hjá sér en ég held aðallega að hún ætti erfitt með að halda aftur af tárum ef ég fer að verða væmin. Í samstarfi við Rentaparty.is verðum við með myndakassa og flottan bakgrunn svo við fáum skemmtilegar myndir af fólki úr fermingunni. Þegar ég fermdist var haldin karaoke-keppni á milli borðanna svo það er engin pressa á fólk í þessari fermingu, nema að skella í eitt bros.“

Áttu ráð fyrir þá sem munu ferma á næsta ári?

„Já númer eitt er að byrja á því að anda inn og anda út. Fara í örlitla rannsóknarvinnu.

Spyrjið fermingarbarnið hverjar óskir þess eru og reynið að koma til móts við þær óskir. Þetta er þrátt fyrir allt sérstakur og mikilvægur dagur í lífi barnanna okkar. Svo myndi ég bara halda áfram að anda inn og anda út. Þetta hefst allt að lokum.“

Kíló af bleiku M&M

Hefur þú fengið stuðning fyrir þennan undirbúning frá einhverjum sem er snillingur í svona viðburðum?

„Já aldeilis. Vinkona mín Þórunn Hulda Vigfúsdóttir hefur verið mér innan handar með ráðleggingar. Hún er mikill fagurkeri og hún hélt ótrúlega fallega veislu þegar dóttir hennar fermdist. Svo skráði ég mig í hópinn Fermingarundirbúningur og hugmyndir á Fésbókinni og hef því fylgst örlítið með hvernig aðrir hafa sínar veislur. Þar hef ég fengið ýmsar hugmyndir en ég tel að það sé mikilvægt að fá ekki samviskubit ef maður gerir hlutina öðruvísi en aðrir. Sumar fjölskyldur halda fast í fjölskylduhefðir en aðrir velja að fara í gegnum þetta ferli á nýstárlegan hátt. Ekkert er verra né betra. Maðurinn minn hefur einnig veitt mjög góðan andlegan stuðning. Hann stendur með mér í þessu öllu þrátt fyrir að eiga stundum erfitt með að skilja af hverju ég þarf nauðsynlega að kaupa kíló af bleiku M&M-nammi því það passar svo vel við þemað. Þá hristir hann hausinn, faðmar mig og býðst svo til að halda á pokunum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert