Flutt út með barnið frá Bradley Cooper

Fyrirsætan Irina Shayk mætti ein á Met Gala viðburðinn í …
Fyrirsætan Irina Shayk mætti ein á Met Gala viðburðinn í upphafi maí mánaðar á þessu ári. mbl.is/AFP

Fyrirsætan Irina Shayk hefur tekið þá ákvörðun að flytja út frá kærastanum Bradley Cooper með tveggja ára dóttur þeirra Lea De Seine. Fréttir af þessu má finna á vefmiðli Mirror

Samkvæmt heimildarmönnum vefmiðilsins hefur sambandið staðið höllum fæti í nokkra mánuði. Parið sem hefur verið saman frá árinu 2015 hafa búið sér til fallegt heimili í húsi Cooper að undanförnu. Húsið er metið á rúmlega 3 milljónir Bandaríkjadala. 

Sögusagnir eru uppi um að Lady Gaga sé ástæðan fyrir sambandserfiðleikunum, þó söngkonan hafi þvertekið fyrir að nokkuð sé á milli hennar og Cooper í fjölmiðlum.  

Shayk er dugleg að birta myndir af sér á samfélagsmiðlum, enda er fjöldi fylgjenda á Isntagram mark um velgengni í fyrirsætuheiminum. Hún birtir hins vegar aldrei myndir af sér með dóttur sinni eða Cooper og gefur þannig fólki litlar upplýsingar um sig sem persónu.

Þeir sem hafa fylgst með henni í gegnum árin segja að sambandið við Cooper hafi reynt á hana þó hún tali ekki mikið um það opinberlega. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert