Dóttirin ekki fylgihlutur á myndum

Khloé Kardashian skapar töfrandi minningar ásamt dóttur sinni á Bahama.
Khloé Kardashian skapar töfrandi minningar ásamt dóttur sinni á Bahama. Skjáskot/Instagram

Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian svaraði fyrir sig þegar fylgjandi hennar á Instagram spurði hana hvort hún vissi ekki að barnið hennar ætti ekki að vera fylgihlutur á myndum. 

„Viltu frekar sjá foreldri sem býr EKKI til minningar og hefðir með barninu sínu? Viltu frekar að einhver annar passi barnið mitt á meðan ég ferðast? Ég er mamma hennar og ég mun fagna lífinu með henni á hverjum degi. Við True erum að skapa töfrandi minningar SAMAN AÐ EILÍFU,“ skrifaði Kardashian.

Kardashian er nú í fríi á Bahamas-eyjum ásamt systur sinni Kim Kardashian og fjölskyldu hennar. Hún hefur birt fjölda mynda af sjálfri sér og dóttur sinni í góðu gamni á eyjunni fögru.

View this post on Instagram

Chi: I heard my mama say “vacation calories don’t count” True: Don’t tell me twice Chi

A post shared by Khloé (@khloekardashian) on Aug 19, 2019 at 9:21am PDT


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert