Betlar um kynlíf eftir að annað barnið kom í heiminn

Tolbert-fjölskyldan.
Tolbert-fjölskyldan. Skjáskot/Instagram

Bachelor in Paradise-stjarnan Tanner Tolbert sagði í viðtali í hlaðvarpsþætti Nick Viall, The Viall Files, að það hafi allt breyst eftir að hann og eiginkona hans, Jade Roper Tolbert, eignuðust sitt annað barn. Sonur þeirra kom svo eftirminnilega í heiminn 29. júlí, en hann fæddist á gólfinu í fataskáp þeirra hjóna. 

Tolbert segir í hlaðvarpinu að eiginkona hans vilji sjaldnar stunda kynlíf með honum og að hann þurfi oft að betla kynlíf. Hann vilji hins vegar ekki halda áfram að betla því hann vill ekki að Jade stundi kynlíf með honum, honum til vorkunnar. 

Stutt er á milli barna þeirra Tolbert-hjóna og segir hann að það hafi reynt mikið á hjónalíf þeirra. Núna stundi þau mjög sjaldan kynlíf. Viall spurði Tolbert hvort hann horfði á klám í staðinn, en Tolbert segist gera það ofur sjaldan og aðeins þegar eiginkona hans er ekki heima.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert