Faðir í fimmta sinn á 21 ári

Ronan Keating á sviðinu í Herjólfsdal.
Ronan Keating á sviðinu í Herjólfsdal. Ljósmynd/Sigurjón Ragnarsson

Íslands­vin­ur­inn Ronan Keating eignaðist dóttur á dögunum með eiginkonu sinni Storm. Tónlistarmaðurinn greindi frá fæðingunni með því að birta mynd á Instagram af fæðingardeildinni. Fékk stúlkan nafnið Coco Knox Keating. 

„Halló heimur. Deilum gleðitíðindum á þessum tímum með því að tilkynna örugga fæðingu dóttur okkar Coco Knox Keating,“ skrifaði söngvarinn og greindi frá því að stúlkan hefði komið í heiminn þann 27. mars. Heilsast bæði móður og dóttur vel. 

Tónlistarmaðurinn og eiginkona hans fagna fimm ára brúðkaupsafmæli í ágúst en þau eiga fyrir soninn Cooper sem er tveggja ára gamall. Börnin tvö eru ekki fyrstu börn hins 43 ára gamla tónlistarmanns en hann á þrjú börn úr fyrra hjónabandi. Elsta barnið hans er 21 árs og því töluverður aldursmunur á yngsta og elsta barninu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert