Á von á öðru barni eftir erfiða fyrstu meðgöngu

Shay Mitchell á von á öðru barni.
Shay Mitchell á von á öðru barni. AFP

Pretty Little Li­ars-leik­kon­an Shay Mitchell á von á sínu öðru barni. Aðeins eru tvö ár síðan hún eignaðist sitt fyrsta barn en hún á dótturina Atlas Noa með unnusta sínum Matte Babel. 

Mitchell greindi frá því að hún væri ólétt á Instagram-síðu sinni og sagði að tilfinningin væri blendin þar sem að hún væri einnig að syrgja ömmu sína sem lést í síðustu viku. Hún sagði þetta þó vera hringrás lífsins og velti fyrir sér hvort þetta hafi alltaf átt að fara svona.

Mitchell glímdi við meðgönguþunglyndi þegar hún gekk með sitt fyrsta barn og var ekki viss um hvort hún treysti sér í aðra meðgöngu. „Ég ætla að vera hrein­skil­in og segja það. Mig lang­ar svo mikið að Atlas eign­ist systkini en ég veit ekki hvort ég get gengið með barn aft­ur. Ég var ekki geislandi gyðja sem elskaði þetta. Mig lang­ar ekki að ganga með barn aft­ur af því það tók á and­lega,“ sagði leik­kon­an sem hefur greinilega ákveðið að reyna aftur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert