Börnin tóku foreldrana í gíslingu

Jólakort frá Hilary Duff og fjölskyldu.
Jólakort frá Hilary Duff og fjölskyldu. Skjáskot/Instagram

Jólakort eru oft falleg og væmin en ekki jólakort leikkonunnar Hilary Duff. Myndin á kortinu sýnir að Duff og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Matthew Koma, eru með sótsvartan húmor. 

Duff og Koma eiga saman tvö börn sem eru fædd árin 2018 og 2021. Duff á einnig tíu ára gamlan son með fyrrverandi eiginmanni. Á myndinni sem fylgir jólakortinu má sjá hvernig börnin þrjú hafa tekið foreldrana í gíslingu með jólaseríu og sett límaband fyrir munninn á þeim. 

Myndin sýnir greinilega að það eru börnin sem stjórna á heimilinu. „Gleðilega hátið,“ stendur á jólakorti fjölskyldunnar. „Það er ekki allt rólegt.“

View this post on Instagram

A post shared by Hilary Duff (@hilaryduff)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert