Smáhesturinn Friðrik í sínu fyrsta flugi

Friðrik í fluginu.
Friðrik í fluginu. Skjáskot/Facebook

Smáhesturinn Friðrik fór í sitt fyrsta flug á dögunum og stóð sig með prýði. Friðrik litli er þjálfaður þjónustuhestur og fylgdi eiganda sínum Ronicu Froese í flug frá Grand Rapids í Michican til Ontario í Kaliforníu. 

„Ég er búin að eyða heilu ári í að þjálfa þennan hest og var búin undir allt,“ sagði Froese í viðtali við Fox 17

„Ég keypti tvö sæti á fyrsta farrými fyrir okkur, ég borgað handlegg og fótlegg fyrir þessa miða en ég gerði það því þetta var í fyrsta skipti sem Friðrik fór í flugvél og ég vildi að hann hefði það notalegt, ég vildi að hann hefði nóg pláss,“ sagði Froese. 

Á Facebook-síðu Friðriks má sjá mynd af honum og Froese í vélinni þar sem Friðrik hvílir snoppuna í fangi Froese.

Friðrik litli var duglegur í fluginu.
Friðrik litli var duglegur í fluginu. Skjáskot/Facebook

Hundar og kettir eru reglulegir farþegar í flugvélum í Bandaríkjunum. Smáhestar eru einnig leyfðir sem aðstoðardýr um borð en þær reglur eru til endurskoðunar. Þetta gæti því hafa verið síðasta flugferð Friðriks.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert