Einhleyp og áhyggjulaus í Egyptalandi

Danica Patrick nýtur lífsins í Egyptalandi.
Danica Patrick nýtur lífsins í Egyptalandi. Skjáskot/Instagram

Kappaksturskonan Danica Patrick virðist lítið vera að velta sér upp úr því að fyrrverandi kærasti hennar, NFL-leikmaðurinn Aaron Rodgers, hafi trúlofast heimsfrægri leikkonu á dögunum. Hún nýtur nú lífsins í Egyptalandi. 

Patrick og Rodgers hættu saman í júlí á síðasta ári eftir rúmlega tveggja ára samband en hann er nú trúlofaður leikkonunni Shailene Woodley. 

„Þetta var löng og mögnuð tveggja vikna ferð sem endaði í gærmorgun með hinum mögnuðu píramídum og sfinx ... undir fullu tungli að sjálfsögðu,“ skrifaði Patrick við mynd af sér í eyðimörkinni.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert