Ofurhjón sleikja sólina á Kosta Ríka

Tom Brady og Gisele Bündchen.
Tom Brady og Gisele Bündchen. AFP

Ofurhjónin Tom Brady og Gisele Bündchen virðist ætla að njóta páskahátíðarinnar í sólinni á Kosta Ríka. Brady og Bündchen hafa sést á vappi á ströndinni og að borða á veitingastöðum. 

Börnin þeirra þrjú, Benjamin, Vivian og Jack, eru öll með í för.

Brady jafnar sig nú á hnéaðgerð sem hann fór í fyrr á þessu ári vegna ótilgreinds kvilla. Hann hefur því þurft að taka sér frí frá æfingum með liði sínum Tampa Bay Buccaneers. 

Page Six

Fjölskyldan nýtur lífsins í sólinni í Kosta Ríka.
Fjölskyldan nýtur lífsins í sólinni í Kosta Ríka.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert