Ef þú getur gengið upp stigana heima getur þú upplifað náttúruna

Arnar Már Ólafsson.
Arnar Már Ólafsson. Ljósmynd/Björgvin Hilmarsson

Arnar Már Ólafsson, markaðsstjóri Íslenskra fjallaleiðsögumanna og Arcanum-ævintýraferða, kann ótal góð ráð til að upplifa náttúru Íslands um páskana. Þótt hann sé sjálfur fyrir erfiðar gönguleiðir á hálendinu segir hann marga einfalda möguleika í boði til að fá súrefni og orku í líkamann á páskunum. 

Allir geta fundið leið til að njóta sín í náttúrunni ef marka má Arnar Má Ólafsson sem segir það eina sem fólk þurfi að gera sé að taka fyrsta skrefið í átt að útivistardraumnum.

Tónninn í röddinni breytist þegar hann telur upp alla þá staði sem hann elskar að heimsækja í náttúru Íslands.

„Ég hugsa að áhuga minn og ástríðu á útivist megi rekja til æskunnar. Ég var mikið í íþróttum, var í skátunum og í hestamennsku með foreldrum mínum.

Ungur maður fór ég síðan í nám til Frakklands í ferðamálafræði og samhliða námi á sumrin fór ég að leiðsegja frönskum ferðamönnum um hálendi Íslands.“

Arnar Már var í Vichy, Clermont- Ferrand og Chambéry í Frakklandi. Hann dvaldi þar í fimm ár og fór síðan til Þýskalands, Hollands og Bretlands.

„Ég ætlaði aldrei að flytja heim aftur en svo tóku örlögin í taumana og eitt leiddi af öðru þar til ég fór ekki út aftur heldur festi mig í sessi hér.“

Hann dvaldi í samtals sjö ár erlendis og er sammála því að Frakkland sé land fagurkera og að landslagið í landinu og menningin sé heillandi.

„Ég er samt á því að Ísland sé ekki síðra þegar kemur að náttúrufegurð og útivist þótt samanburður sé erfiður en það var gífurleg saga á þeim slóðum sem ég dvaldi á í Frakklandi.

Ég verð þó að nefna að kuldinn þar á veturna var öðruvísi en hér heima, þar sem manni varð kalt inn að beini úti vegna rakans.“

Ljósmynd/Björgvin Hilmarsson

Hvað er það við Ísland sem gerir landið svona einstakt fyrir útlendinga?

„Við erum í ekki svo mikilli fjarlægð frá okkar helstu mörkuðum en þegar fólk kemur hingað þá fær það strax þessa tilfinningu að það sé komið á mjög svo framandi slóðir.

Hér eru til dæmis jöklar, grænir dalir, eldfjöll, hraunbreiður, mikil auðn, fagrir fossar og fleira. Það er hægt að fara á ólíka margbrotna staði á stuttum tíma. Þannig að Ísland er mjög áhrifamikið ferðamannaland.“

Arnar Már hvetur alla Íslendinga til að nýta sér þjónustu Íslenskra fjallaleiðsögumanna í landinu. Slík þjónusta geri gæfumuninn fyrir þá sem vilja upplifa landið með fólki sem er með ástríðu fyrir útiveru og hefur þekkingu á þeim svæðum sem farið er um.

„Það er fjölbreytt afþreying í boði fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki í landinu og í raun og veru svo mikið í boði að allir ættu að finna eitthvað fyrir sinn smekk.

Það er eins mikill fróðleikur í boði fyrir unga fólkið okkar sem langar að kynnast af eigin raun mótun landsins, jöklanna og stórbrotinnar náttúrunnar. Það er allt öðruvísi að fara um landið í raun en að lesa um landið í gegnum bók.“

Geta allir farið í skipulagðar ferðir eða þarf maður að vera hress og hraustur til þess?

„Í raun má segja að ef þú getur gengið upp stigann heima hjá þér þá getur þú fundið leið til að upplifa náttúruna í ferð með okkur.“

Ljósmynd/Björgvin Hilmarsson

Vægt til orða tekið að segja að hann hjóli mikið

Hvað ætlar þú að gera um páskana?

„Ég verð úti að hjóla um páskana. Ég er mikill ástríðuhjólari og er það á mörkum áráttu og ástríðu. Það má alla vega segja að ég hjóli mikið. Ég verð einnig með eiginkonu minni, Steinunni Hildi Hauksdóttur, í hestamennsku og svo ætla ég á skíði með yngstu dóttur minni, Boel Sigurlaugu Arnarsdóttur sem er þrettán ára og er byrjuð á bretti. Hún beit á agnið með útivist og er að elska hana í gegnum skíðin.

Svo stefnum við á að skella okkur í fjórhjólaferð á Sólheimasandi og jafnvel ísgöngu á Sólheimajökli. Ástæðan fyrir því er sú að ísinn er fallegastur að mínu mati á þessum tíma árs.“

Arnar Már og Steinunn eiga þrjár dætur og segir hann eldri tvær dæturnar, þær Andreu og Ylfu, duglegar að hreyfa sig þótt hann myndi ekki segja þær með ástríðu fyrir útivist.

„Þær eru mjög mikið á hreyfingu og að gera alls konar spennandi hluti sem hentar þeim í augnblikinu.“

Hvað viltu segja við þá sem hafa ekki fengið sama uppeldi og þú en langar að finna neistann úti í náttúrunni?

„Ég mæli til dæmis með náttúrunni í kringum borgina eða bæinn sem þú býrð í. Það eru mörg falleg svæði að uppgötva steinsnar frá byggð.

Sem dæmi get ég nefnt Helgafell. Það er mjög einfaldur og léttur gangur sem flestir geta farið.

Búrfellsgjá er einnig þar við hliðina á þar sem engin teljanleg hækkun er í þeirri gönguleið.

Svo er hægt að ganga hringinn í kringum Hvaleyrarvatn. Það er stutt ganga sem notalegt er að fara með nesti og upplifa náttúruna með þeim sem manni þykir vænt um.“

Ljósmynd/Björgvin Hilmarsson

Gott að tengja í ferð með öðrum

Í dag er mikið talað um einmanaleika og hvernig kórónuveiran hefur leitt til enn þá meiri einveru sem hefur slæm áhrif á líðan fólks. Gætu skipulagðar gönguferðir verið leið til að tengja við annað fólk í samfélaginu?

„Já, ekki spurning. Stóra skrefið er alltaf bara að bóka einfalda góða ferð og svo bara að koma sér á staðinn. Eftirleikurinn er auðveldur og margir verða mjög hissa á því hvað góður leiðsögumaður getur gefið úti í náttúrunni.“

Er þetta svipað og að fara með listunnanda á tónleika?

„Já, ekki spurning. Stundum þarf maður að ala sig sjálfan upp að þessu leyti og fá aðstoð til þess að læra að elska það sem er svona gott og hollt fyrir okkur.“

Arnar Már segir góðan göngutúr gleðja líkama og sál. Að fá súrefni í lungun og finna fyrir góðri líkamlegri þreytu er gott fyrir alla sem vinna daglangt inni hjá sér.

Ekki síst á veturna.

„Íslendingar hafa verið að ferðast meira innanlands og uppgötva allar perlur náttúrunnar sem ferðamenn koma til landsins að sjá. Ég á margar uppáhaldsnáttúruperlur sem ég sæki í á landinu sem hafa sterk áhrif á mig. Maður þarf ekki endilega að fara langar leiðir til að sjá eitthvað fallegt hér. Hálendið kallar þó alltaf sérstaklega sterkt til mín og þá staðir sem eru ekki endilega aðgengilegir almenningi á þessum tíma árs.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert