Beyoncé og Jay-Z í fljótandi höll í fríinu

Beyoncé og Jay-Z eru í fríi í Evrópu.
Beyoncé og Jay-Z eru í fríi í Evrópu. Skjáskot/Instagram

Tónlistarhjónin Beyoncé og Jay-Z njóta þess að slaka á í mildu evrópsku loftslagi um þessar mundir. Þau ferðast um á snekkju og hafa komið við á Ítalíu og frönsku riveríunni.

Tónlistarkonan birti myndir úr fríinu á Instagram en fram kemur á vef Daily Mail að hjónin dvelji á snekkju sem er í eigu milljarðamæringsins Jeff Bezos, stofnanda Amazon. Snekkjan er metin á 500 milljónir punda.  

Þau sitja ekki bara og drekka te í fínum fötum og stilla sér upp fyrir myndir á Instagram. Þau sáust til dæmis leika sér á sæþotu í vikunni. Jay-Z sat við stýrið en Beyoncé hélt um eiginmann sinn, bæði voru í björgunarvestum. 

View this post on Instagram

A post shared by Beyoncé (@beyonce)

View this post on Instagram

A post shared by Beyoncé (@beyonce)

View this post on Instagram

A post shared by Beyoncé (@beyonce)

View this post on Instagram

A post shared by Beyoncé (@beyonce)





mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert