Þorgerður Katrín óskar eftir miðum

Þorgerður Katrín með eiginmanni sínum og fyrrverandi landsliðsmanninum Kristjáni Arasyni …
Þorgerður Katrín með eiginmanni sínum og fyrrverandi landsliðsmanninum Kristjáni Arasyni í Kristianstad árið 2023. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, er mikil handboltakona. Hún óskaði í dag eftir miðum á næstu leiki íslenska landsliðsins í Facebook-hóp. Þorgerður Katrín var í miklu stuði á fyrstu leikjum liðsins í München. Næsti leikur íslenska liðsins fer fram í Köln á fimmtudaginn. 

„Er einhver með 2 lausa miða til sölu á næstu tvo leiki? Á fimmtudag/morgun á móti Þjóðverjum og á laugardag á móti Frökkum?“ Skrifar Þorgerður Katrín.

Þorgerður Katrín er ekki bara venjulegur stuðningsmaður liðsins þar sem hún er móðir Gísla Þor­geirs Kristjáns­son­ar, landsliðsmanns Íslands í hand­knatt­leik. Hann er lyk­ilmaður ís­lenska í liðinu og var meðal ann­ars út­nefnd­ur íþróttamaður árs­ins 2023.

Gísli Þorgeir Kristjánsson.
Gísli Þorgeir Kristjánsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert