„Heimskulegt“ að halda HM í Rússlandi

Mótið hefst 14. júní en úrslitaleikurinn fer fram 15. júlí.
Mótið hefst 14. júní en úrslitaleikurinn fer fram 15. júlí. AFP

Utanríkisráðherra Litháens, Linas Linkevicius, hefur látið hafa eftir sér að það hafi verið „slæm hugmynd„ að halda heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Rússlandi. Fyrsti leikur fer fram í Moskvu 14. júní.

„Það er heimskulegt að halda heimsmeistaramótið í Rússlandi vegna þess að allt í landinu snýst um pólitík. Það er gott fyrir áróður þeirra að verða miðpunktur athyglinnar,“ sagði Linkevicius.

Eftir að Skripal-feðgin urðu fyrir taugagasárás í byrjun mars tilkynntu yfirvöld í Bretlandi og á Íslandi að ráðherrar frá löndunum myndu ekki koma á mótið í sumar. Linkevicius hefur ekki trú á frekari sameiginlegum aðgerðum gegn Rússum.

„Ég vonast hins vegar til þess að fleiri tjái sig um þetta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert