Fanney í essinu sínu á Íslendingahóteli í Austurríki

Fanney Ingvarsdóttir og fjölskylda hennar sendu páskakveðjur frá Austurríki!
Fanney Ingvarsdóttir og fjölskylda hennar sendu páskakveðjur frá Austurríki! Samsett mynd

Páskarnir voru ljúfir og fjörugir hjá Fanneyju Ingvarsdóttur, markaðsfulltrúa hjá Bioeffect og fyrrverandi fegurðardrottningu, og fjölskyldu hennar. Þau hafa síðastliðna viku notið lífsins til hins ýtrasta í sannkallaðri skíðaparadís í austurrísku Ölpunum. 

Fanney hefur verið dugleg að deila töfrandi myndum frá ferðalaginu á Instagram-síðu sinni, en hún birti meðal annars myndaröð af sér ásamt unnusta sínum Teiti Páli Reynissyni og börnunum þeirra tveimur, Kolbrúnu Önnu og Reyni Alexi, með yfirskriftinni: „Okkar uppáhalds fjölskyldufrí.“

Heimavöllur Íslendinga í austurrísku Ölpunum

Af myndum að dæma virðist fjölskyldan hafa gist á skíðahótelinu Speiereck í bænum St. Michael í Langau í Austurríki. Hótelið er í eigu Íslendinga sem tóku við rekstrinum haustið 2019 og er þekkt fyrir að vera heimavöllur Íslendinga. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fjölskylda Fanneyjar heimsækir hótelið. Árið 2021 vörðu þau jólunum þar og í skíðabrekkunum, en frá hótelinu er stutt í næstu skíðalyftu eða aðeins um sjö mínútna ganga. 

Þá hafa fleiri frægir Íslendingar notið þess að gista á hótelinu sem er með þrjár stjörnur og í 200 metra fjarlægð frá miðbæ St. Michael. Þar má nefna áhrifavaldinn Birgittu Líf Björnsdóttur, Ragnar Frey Ingvarsson matarbloggara og Tobbu Marínósdóttur, upplýsingafulltrúa menningar- og viðskiptaráðuneytis. 

Fanney virðist hæstánægð með herbergið á hótelinu, en hún birti …
Fanney virðist hæstánægð með herbergið á hótelinu, en hún birti mynd af því og merkti staðsetninguna inn á hana. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert