1-4 klst langir reiðtúrar um fallega náttúru Fljótanna. Bjóðum upp á ókeypis kennslu á undan reiðtúrnum fyrir byrjendur, til að læra stjórnun á hestinum. Höfum þæga hesta sem henta bæði byrjendum og vönum, börnum og fullorðnum. Reiðtygi, hjálmur, hestur innifalinn í verðinu. Bjóðum líka upp á fjölskyldustundir með hestum í gerði, fyrir fólk með börn yngri en 6 ára.