Viðurkenning fyrir óeigingjarnt starf í þágu fjölskyldna

f.v. Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra, Mark Andrew Zimmer framhaldsskólakennari, Vilborg Guðný …
f.v. Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra, Mark Andrew Zimmer framhaldsskólakennari, Vilborg Guðný Valgeirsdóttir leikskólakennari, Birna Björk Reynisdóttir grunnskólakennari, Ragnar Schram framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna og Íris Dröfn Halldórsdóttir grunnskólakennari.

Alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar var í gær og af því tilefni var fjölskylduviðurkenning SOS Barnaþorpanna á Íslandi veitt í þriðja sinn. Að þessu sinni heiðra samtökin kennara í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum fyrir óeigingjarnt starf í þágu fjölskyldna. Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra veitti viðurkenninguna.

Í umsögn valnefndar segir að kennarar vinni óeigingjarnt starf í þágu fjölskyldna, jafnvel utan hefðbundins vinnutíma, til dæmis með aðkomu að fjölskylduvandamálum.  Það felst m.a. í samtölum við foreldra, ráðgjöf, aðstoð við heimanám, koma málum í farveg o.m.fl. til að styðja við fjölskylduna.

SOS Barnaþorpin eru stærstu einkareknu barnahjálparsamtökin í heiminum sem sérhæfa sig í að útvega yfirgefnum börnum heimili, foreldra og systkini.

Þeir kennarar sem veittu viðurkenningunni móttöku eru;

- fyrir hönd leikskólakennara, Vilborg Guðný Valgeirsdóttir frá leikskólanum Vallarseli á Akranesi.
- fyrir hönd grunnskólakennara, Íris Dröfn Halldórsdóttir frá Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ og Birna Björk Reynisdóttir frá Egilsstaðaskóla.
- fyrir hönd framhaldsskólakennara, Mark Andrew Zimmer frá Menntaskólanum við Hamrahlíð.

Í valnefndinni sátu: Drífa Sigfúsdóttir, mannauðsráðgjafi, Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við HÍ, Nichole Leigh Mosty, verkefnastjóri hjá fjölskyldumiðstöð Breiðholts og Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert