Víkingur Heiðar og Halla eignuðust son

Víkingur Heiðar Ólafsson og Halla Oddný Magnúsdóttir með soninn.
Víkingur Heiðar Ólafsson og Halla Oddný Magnúsdóttir með soninn.

Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson og fjölmiðlakonan Halla Oddný Magnúsdóttir eignuðust son 3. apríl. Móður og barni heilsast vel. 

„Þessi dásemdardrengur kom í heiminn þann 3. apríl á slaginu 07:17. Foreldrarnir sjá ekki sólina fyrir honum – hann er hraustur, fríður, spakur og veglegur: 18,5 merkur og 53 cm. Hann biður að heilsa,“ segir Oddný Halla á Facebook-síðu sinni. 

Barnavefurinn óskar þeim hjartanlega til hamingju með drenginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert