Tvíburasystur óléttar á sama tíma

Brie og Nikki Bella eru báðar óléttar.
Brie og Nikki Bella eru báðar óléttar. skjáskot/Instagram

Raunveruleikastjörnurnar og tvíburarnir Nikki og Brie Bella tilkynntu á dögunum að þær væru báðar óléttar. 

Systurnar eiga von á sér með tæplega tveggja vikna millibili seinna á árinu. Í viðtali við People segja þær systur að þetta hafi ekki verið skipulagt hjá þeim og bætti Nikki við að það væri frekar erfitt að skipuleggja barneignir.

Brie á tveggja ára dóttur með eiginmanni sínum, hnefaleikakappanum Daniel Bryan. Hún var mjög hissa þegar hún sá jákvætt óléttupróf en þau höfðu reynt að eignast barn númer tvö í sjö eða átta mánuði. Hún segist eiginlega hafa verið búin að sætta sig við að hún myndi bara eignast eitt barn.

Nikki segir að hún og eiginmaður hennar, Dancing With the Stars-stjarnan Atrem Chigvinstev, hafi ekki verið byrjuð að reyna að eignast börn. Hún hafi bara haft einhverja tilfinningu og ákveðið að taka próf, sem reyndist jákvætt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert