Sonurinn hrifinn af róttækri list

Fimm mánaða gamall sonur Grimes og Elon Musk er hrifinn …
Fimm mánaða gamall sonur Grimes og Elon Musk er hrifinn af róttrækri list. AFP


„Ég er búin að horfa á Apocalypse Now og þannig hluti með syni mínum. Hann er hrifinn af róttækri list. Hann er það í alvöru, ég held það sé ekkert að því að örva þau á þennan hátt,“ sagði Grimes í viðtali við New York Times.

„Þau eru greinilega hrifin af ákveðnum hlutum og ekki af öðrum. Þau eru klárlega með smekk,“ sagði Grimes.

Grimes hefur verið að hanna svefntónlist fyrir börn og fullorðna og hefur nú gefið út gervigreindarvögguvísu með fyrirtækinu Endel. 

Hugmyndina að vögguvísunni fékk hún þegar hana vantaði betri svefntónlist fyrir X. „Þegar þú ert með barn ertu alltaf með hvítsuðsvélar. Það er miklu auðveldara að þjálfa þau í svefni þar sem þú ert með eitthvert hljóðskema. Og mín hugsun var: gæti þetta verið listrænna á einhvern hátt?“

Vögguvísu Grimes má hlusta á hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert