Frumsýndi dótturina á fyrstu instagrammyndinni

Rupert Grint og dóttir hans, Wednesday G. Grint.
Rupert Grint og dóttir hans, Wednesday G. Grint.

Harry Potter-stjarnan Rupert Grint er mættur til leiks á samfélagsmiðlinum Instagram. Grint viðurkenndi að hann væri 10 árum of seinn að skrá sig á samfélagsmiðilinn en bætti aðdáendum sínum það upp með að birta fyrstu myndina af dóttur sinni. 

Grint varð faðir í fyrsta skipti á þessu ári þegar frumburður hans og kærustu hans Georgiu Groome kom í heiminn. 

„Hæ Instagram, bara 10 árum of seint, en hér er ég mættur. Grint á gramminu. Kom hingað inn til að kynna ykkur fyrir Wednesday G. Grint. Verið örugg, Rupert,“ skrifaði Grint í fyrstu færsluna sína. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert