Flutt úr borginni og byrjuð í nýjum skóla

Hertogahjónin af Cambridge, Vilhjálmur og Katrín, fylgdu börnum sínum þremur í nýjan skóla í vikunni. Fjölskyldan flutti nýlega frá London og þurftu Georg prins og Karlotta prinsessa að skipta um skóla. Lúðvík prins er að hefja sína skólagöngu. 

Ljósmyndarar fylgdust með fjölskyldunni þegar hún mætti á kynningu á nýja skólanum í Ascot á Englandi. Börnin voru í sumarlegum skólabúningum. Drengirnir tveir voru í stuttbuxum og leiddu móður sína. Karlotta prinsessa var hins vegar í fjólubláum kjól og leiddi föður sinn. 

Georg prins, Katrín hertogaynja af Cambridge, Lúðvík prins, Vilhjálmur prins …
Georg prins, Katrín hertogaynja af Cambridge, Lúðvík prins, Vilhjálmur prins og Karlotta prinsessa. AFP

Jonathan Perry skólastjóri Lambrook-skólans tók á móti börnunum. Þau fengu kynningu á skólanum fyrsta daginn áður en hefðbundin kennsla hófst. Skólinn er einkaskóli og kostar töluverða upphæð að senda börn sín í skólann. Börnin geta sótt skólann þar til þau verða 13 ára. Georg prins er níu ára, Karlotta sjö ára og Lúðvík er aðeins fjögurra ára.

Skólastjórinn Jonathan Perry tók á móti börnunum.
Skólastjórinn Jonathan Perry tók á móti börnunum. AFP
Fjölskyldan var spennt að skoða nýja skólann.
Fjölskyldan var spennt að skoða nýja skólann. AFP
Skólastjórinn fór yfir málin.
Skólastjórinn fór yfir málin. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert