Á von á tólfta barninu

Fyrirsætan Abby De La Rosa á von á sínu þriðja …
Fyrirsætan Abby De La Rosa á von á sínu þriðja barni með Nick Cannon, en barnið verður tólfta barn Cannons. Skjáskot/Instagram

Ófríska fyrirsætan Abby De La Rosa hefur nú staðfest að faðir barnsins sé enginn annar en grínistinn Nick Cannon. Barnið er þriðja barn La Rosa sem og þriðja barn þeirra saman, en þau eignuðust tvíburana Zion og Zillion í júní 2021.

Aðeins tvær vikur eru liðnar frá því að Cannon tilkynnti að hann ætti von á sínu ellefta barni með fyrirsætunni og tónlistarkonunni Alyssu Scott, en nú er ljóst að hann á einnig von á sínu tólfta barni með La Rosa. 

„Ein nótt breyttist í fjögur ár og þrjú börn“

La Rosa staðfesti sögusagnirnar á Instagram þegar hún deildi fyndnum texta með fylgjendum sínum. Í textanum stóð: „Ein nótt með Vog getur breyst í þrjú til fjögur ár. Farðu varlega.“ Við textann skrifaði La Rosa: „Fjandinn! Ein nótt breyttist í fjögur ár og þrjú börn mjög fljótt.“

Nick á afmæli 8. október og því í stjörnumerkinu Vog. 

Tvö nýfædd börn og tvö til viðbótar á leiðinni

Það hefur verið nóg að gera hjá grínistanum í ár. Í september eignaðist hann sitt níunda barn með fyrirsætunni LaNishu Cole og níu dögum síðar tíunda barn sitt með Brittany Bell.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert