Enn bætist í fjölskylduna

Alyssa Scott og Nick Cannon eiga von á sínu öðru …
Alyssa Scott og Nick Cannon eiga von á sínu öðru barni saman. Samsett mynd

Grínistinn Nick Cannon á von á enn einu barninu. Í etta sinn á hann von á barni með fyrirsætunni og tónlistarkonunni Alyssu Scott. Cannon tók á móti sínu níunda barni í september, en níu dögum síðar kom tíunda barnið. 

Fyrirsætan deildi gleðifregnunum á Instagram í síðasta mánuði en gaf þá ekki upp hver faðir barnsins væri. Þau opinberuðu það með fallegri meðgöngumyndatöku á dögunum.

Cannon deildi einni af myndunum með fylgjendum sínum í gær.
Cannon deildi einni af myndunum með fylgjendum sínum í gær. Skjáskot/Instagram

Sonurinn lést úr krabbameini

Barnið er annað barn Cannon og Scott saman, en rúmir tíu mánuðir eru liðnir frá því sonur þeirra lést af völdum krabbameins í heila, en hann var aðeins fimm mánaða gamall þegar hann lést. 

Fyrir á Scott fjögurra ára dóttur úr fyrra sambandi, en Cannon á tíu börn með sex konum og virðist alsæll með fjölskyldu sína sem fer sífellt stækkandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert