Leit heldur áfram: „Ekkert nýtt“

Ráðist var á 11 ára stúlku við Víðistaðaskóla í gær.
Ráðist var á 11 ára stúlku við Víðistaðaskóla í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan leitar enn að manninum eða mönnunum sem hafa að undanförnu ógnað eða jafnvel ráðist á börn í Hafnarfirði. Engar frekari vísbendingar hafa komið fram síðan í gær, að sögn lögreglu.

Fjög­ur at­vik urði í Hafnar­f­irði að und­an­förnu þar sem maður annað hvort ógnaði börnum eða réðst á þau. Örygg­is­ráðstaf­an­ir í Víðistaðaskóla hafa verið aukn­ar fyrir vikið.

„Ekkert nýtt,“ svarar Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöðinni í Hafnarfirði, spurður af blaðamanni mbl.is hvort einhverjar nýjar vendingar séu í rannsókn málsins.

Hann svarar neitandi hvort eitthvert vitni hafi gefið sig fram. Enn sé óljóst hvort um sama mann sé að ræða í öll­um til­vik­um. 

Réðst á 11 ára stúlku

At­vik­in áttu sér öll stað í Hafnar­f­irði; við Víðistaðatún, við Engi­dals­skóla, nærri Lækj­ar­skóla og nú síðast í gær var ráðist á níu ára stúlku við Víðistaðaskóla.

Mis­mun­andi lýs­ing­ar hafa verið gefn­ar á ger­anda í mál­un­um.

Lýs­ing­in á mann­in­um er sam­bæri­leg í til­kynn­ing­um til lög­reglu frá fyrsta at­vik­inu þar sem maður ógnaði níu ára dreng og í ann­arri til­kynn­ingu ógnaði maður öðrum tveim­ur drengj­um, samkvæmt því sem Skuli Jónsson stöðvarstjóri sagði við mbl.is í gær.

Þá hefur lög­regla einnig fengið til­kynn­ingu um mann sem elti níu ára stúlku við Lækj­ar­skóla og bauð henni nammi. Sú lýsing hafi einnig verið í takt við hinar.

Í gær var síðan ráðist að 11 ára stúlku við Víðistaðaskóla. Skúli sagði at­vikið frábrugðið að því leyti að það er al­var­legra og lýs­ing­ar á mann­in­um öðru­vísi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert