Fyrrverandi piparsveinn verður pabbi

Aðdáendur The Bachelor muna án efa eftir Nick Viall.
Aðdáendur The Bachelor muna án efa eftir Nick Viall. Samsett mynd

Piparsveinninn fyrrverandi Nick Viall á von á sínu fyrsta barni með kærustu sinni, skurðhjúkrunarfræðingnum Natalie Joy. Parið tilkynnti um óléttuna á Instagram-síðu sinni, í færslu þar sem þau birtu ljósmyndir og sónarmynd. 

Parið, sem er trúlofað, byrjaði saman árið 2020 eftir að Joy sendi Viall skilaboð á samfélagsmiðlum.

Viall keppti um ástir Andi Dorfman og Kaitlyn Bristowe í raunveruleikaþættinum The Bachelorette áður en hann hreppti hlutverk piparsveinsins í 21. þáttaröð The Bachelor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert