Íris og Egill tilkynna kynið

Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og Eg­ill Hall­dórs­son eiga von á …
Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og Eg­ill Hall­dórs­son eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Fyr­ir­sæt­an Íris Freyja Salgu­ero Krist­ín­ar­dótt­ir og at­hafnamaður­inn Eg­ill Hall­dórs­son eiga von á sínu fyrsta barni sam­an. Íris tilkynnti kyn barnsins í færslu á Instagram síðastliðna helgi. 

„Heppin að fá að bæta við einni lítilli ævintýra stelpu í fjölskylduna okkar,“ skrifaði Íris við fallega myndaröð. Á myndunum sést glitta í köku með bleiku kremi, en þar að auki fékk hundurinn þeirra bleika slaufu í tilefni dagsins. 

Ferðalög og ævintýri

Íris og Eg­ill kynnt­ust sum­arið 2022 og hafa síðan þá verið dug­leg að ferðast bæði inn­an­lands og er­lend­is. Þau hafa bæði mikla ástríðu fyr­ir ferðalög­um og eru dug­leg að deila æv­in­týra­leg­um mynd­um frá ferðum sín­um á sam­fé­lags­miðlum.

Fjöl­skyldu­vef­ur­inn ósk­ar þeim inni­lega til ham­ingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert