Emma Stone búin að finna ástina

Emma Stone er ekki fyrsta Hollywood-stjarnan sem fellur fyrir starfsmanni …
Emma Stone er ekki fyrsta Hollywood-stjarnan sem fellur fyrir starfsmanni Saturday Night Live-þáttanna. mbl.is/AFP

Leikkonan Emma Stone virðist vera búin að finna ástina. Sá heppni heitir Dave McCary og kemur Stone vafalaust til þess að hlæja en hann bæði skrifar fyrir grínþættina Saturday Night Live og leikstýrir.

Page Six greinir frá sambandinu en Stone var síðast með meðleikara sínum úr The Amazing Spider-Man, Andrew Garfield. Stone og Garfield hættu saman árið 2015 en í sumar virtist sem þau væru að endurnýja kynni sín. Ef það var rétt gekk það að minnsta kosti ekki betur en þetta. 

Starfslið Saturday Night Live-þáttanna er eftirsótt hjá Hollywood-stjörnum þessa dagana. Leikarinn Ben Affleck er í sambandi með framleiðanda þáttanna, Lindsay Shookus, og leikkonan Scarlett Johansson er með Colin Jost sem einnig er liðsmaður SNL. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson