Tengdapabbi Pippu ákærður fyrir nauðgun

Pippa Middleton með eiginmanninum James Matthews.
Pippa Middleton með eiginmanninum James Matthews. AFP

Tengdapabbi Pippu Middleton, systur Katrínar hertogaynju af Cambridge, var ákærður í Frakklandi í dag fyrir að nauðga einstaklingi undir lögaldri.

Hefur AFP-fréttastofan eftir heimildamanni að franska lögreglan hafi tekið David Matthews til yfirheyrslu síðasta þriðjudag, vegna kæru sem lögð var fram á síðasta ári.

Europe 1-útvarpsstöðin, sem greindi fyrst frá málinu, segir að Matthews sem er 74 ára hafi verið kærður af frænku sinni skömmu áður en hún náði lögaldri.

Pippa Middleton giftist syni Mattehews, fjármálamanninum James Matthews, á síðasta ári.  

Samkvæmt því sem Daily Mail greindi frá í tengslum við brúðkaup Middleton á sínum tíma hóf David Matthews feril sinn sem bílasali. Hann gerðist síðan kappakstursökumaður, en eftir að hafa lenti í alvarlegu bílslysi hætti hann kappakstrinum og stofnaði keðju af bílasölum. Hann seldi síðar fyrirtækið og sneri sér að fasteignaframkvæmdum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson