Giftu sig óvænt í Las Vegas

Joe Jonas og Sophie Turner eru nú hjón.
Joe Jonas og Sophie Turner eru nú hjón. mbl.is/AFP

Tónlistarmaðurinn Joe Jonas og Game of Thrones-stjarnan Sophie Turner giftu sig óvænt í nótt. Létu þau Elvis-eftirhermu pússa sig saman í Las Vegas eftir Billboard-tónlistarverðlaunin. 

Vinur hjónanna Diplo birti myndir frá brúðkaupinu og hafa erlendir miðlar á borð við E! og People greint frá hjónabandinu síðan þá. Jonas og Turner tilkynntu um trúlofun sína í desember árið 2017 eftir að hafa verið saman í rúmlega ár. 

Þó svo að Elvis hafi gefið hjónin saman var ekki um neitt grín að ræða og sóttu þau um að ganga í hjónaband í Nevada fyrr um daginn. Heimildarmaður People segir einnig hjónabandið hafa verið alvöru og löglegt. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir